Lausar stöður í Hrafnagilsskóla og Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

Tónmenntakennari, afleysing frá október 2022.

Óskum eftir að ráða kennara til að leiða tónlistarstarf og kenna tónmennt í Hrafnagilsskóla og leikskólanum Krummakoti. Leitað er eftir kennara sem getur unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum tónlist og tónsköpun. Hrafnagilsskóli hefur verið leiðandi í öflugu tónlistarstarfi á landsvísu. Í skólanum er m.a. samþætting tónlistar við hinar ýmsu námsgreinar og söngur á daglegum samverustundum. Ráðið er í starfið frá október 2022 og nær ráðningin til 31. júlí 2023. Reynsla af kennslu og vinnu með börnum er æskileg.

Leitað er eftir tónmenntakennara sem;

  • er tónlistarmenntaður.
  • sýnir metnað í starfi.
  • býr yfir frumkvæði, skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • vinnur í góðri samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.

 

Karlkyns starfsmaður í íþróttamiðstöð og skólaliði.

Óskum eftir að ráða starfsmann í baðvörslu í karlaklefa sundlaugar og íþróttahúss. Viðkomandi sinnir einnig störfum sem falla undir starfssvið skólaliða grunnskóla. Um er að ræða 80% starfshlutfall. Starfsmaður vinnur fjóra virka daga í viku frá klukkan 6:00 til klukkan 14:00. Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða og geta hafið störf sem fyrst.

Leitað er eftir starfsmanni sem;

  • sýnir metnað og sjálfstæði í starfi.
  • vinnur í góðri samvinnu við sundlaugargesti, starfsfólk og nemendur.

 

Nánari upplýsingar veita skólastjórar í síma 464-8100 og 699-4209.

Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2022 og sótt er um með því að senda netpóst á netföngin, hrund@krummi.is eða bjork@krummi.is.