Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús

Um er að ræða 100% stöðu til eins árs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Vinnutími er frá kl. 07:45-16:00.
Óskað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og sveigjanleika í starfi. Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára og reynsla af starfi í eldhúsi er kostur. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2014.
Allar nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir skólastjórnandi í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is