Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf

Fréttir

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara/leiðbeinanda.

Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólanum Krummakoti.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 61 dásamleg börn á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til 1. okt. 2021.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is.