Lóðir á tilboðsverði

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald af lóðum við Bakkatröð í Hrafnagilshverfi tímabundið.  Þess í stað er óskað eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðunum.

Til greina kemur að breyta skipulagi og leyfa raðhús á hluta lóðanna.

Tilboðum í lóðirnar skal skilað til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi mánudaginn 22. apríl kl. 14 og verða þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Lóðirnar má sjá með því að smella hér, en frekari upplýsingar um útboðið, deiliskipulag og þess háttar má sjá með því að smella hér.