Lóðir Reykárhverfi IV

Eyjafjarðarsveit auglýsir lausar til umsóknar 15 lóðir fyrir einbýlishús á einni hæð (E I) lóðir nr. 2-4-6-8-10-12-14-38-40 og á einni eða tveimur hæðum (E I/II) lóðir nr. 1-3-5-7-9-23. Skipulagssvæðið liggur norðan Hrafnagilsskóla og austan Eyjafjarðarbrautar vestri.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar í maí 2008.

Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Syðra-Laugalandi ásamt skipulagsskilmálum fyrir byggingarsvæðið og gatnagerðargjaldskrá.

Umsóknum skal skila á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar fyrir 20. febrúar n. k. Berist fleiri en ein umsókn um lóð verður dregið á milli þeirra. Komi til þess að draga þurfi á milli umsækjenda verður tímasetning útdráttarins tilkynnt viðkomandi strax að loknum umsóknarfrestinum.

Deiliskipulag Reykárhverfi IV

Umsókn um byggingarlóð

Greinargerð - byggingarskilmálar

Samþykkt um gatnagerðargjald