Ráðning skólastjóra Hrafnagilsskóla

Hrund Hlöðversdóttir
Hrund Hlöðversdóttir


Að fenginni tillögu skólanefndar hefur sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar ákveðið að ráða Hrund Hlöðversdóttur í starf skólastjóra Hrafnagilsskóla en átta umsóknir bárust um stöðuna. 

Hrund hefur sl. ár gegnt stöðu aðstoðarleikskólastjóra Krummakots en það er leikskóladeild Hrafnagilsskóla. Hrund er grunnskólakennari með kennsluréttindi í leikskóla. Hún starfaði í 15 ár sem kennari þar af sem deildarstjóri í 11 ár. Hrund er með meistaragráðu í stjórnun menntastofnana með áherslu á skólaþróun.