Samkomugerði, Eyjafjarðarsveit – kynning aðal- og deiliskipulagstillögu á vinnslustigi

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 25. ágúst 2022 sl. að vísa deiliskipulagstillögu fyrir frístundabyggð í landi Samkomugerðis 1 í kynningarferli skv. 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir nýju frístundasvæði á landeigninni Samkomugerði 1 landsp. 1 þar sem heimilt er að byggja þrjú frístundahús. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir tveimur frístundahúsum og er byggingarheimild fyrir einu húsi á svæðinu því óráðstafað að sinni.

Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 1. september og 14. september 2022 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Meðan á kynningu stendur gefst almenningi kostur á að koma ábendingum vegna skipulagstillögunnar á framfæri við skipulags- og byggingar fulltrúa sveitarfélagsins. Erindi vegna málsins skulu vera skriflega og berast á tölvupóstfangið sbe@sbe.is eða með bréfpósti til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri.

Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, fimmtudaginn 8. september 2022 milli kl. 12:00 og 15:00. Opið hús fer fram í samræmi við gr. 5.6.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og mun skipulagsfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar um skipulagstillöguna og taka við ábendingum.

Uppdráttur

Greinargerð

Skipulags- og byggingarfulltrúi