Smámunasafnið

Þann 16. september er síðasti fasti opnunardagur safnsins á þessu ári, eftir það er hægt að panta fyrir hópa í síma 865-1621 eða á netfangið stekkjar@simnet.is.
Við bjóðum 25% haustafslátt af antikmunum s.s. búsáhöldum, skrautmunum, skóm, lopapeysum, myndum t.d. eftirprentun af Akureyri eins og hún leit út 1862 og fleiru og fleiru. Svo eru nokkur stofublóm sem óska eftir nýju heimili.
Verið velkomin í óvenjulega heimsókn - starfsfólk Smámunasafnsins