Starf - leikskólinn Krummakot

Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf.

Um er að ræða 100% stöður leikskólakennara/leiðbeinanda
Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starf í leikskólann Krummakot.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 60 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:
· Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
· Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
· Lipurð í samskiptum.
· Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is