Stjórn UMSE auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Ungmennasamband Eyjafjarðar
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í 50% starf

UMSE er samband 13 íþrótta- og ungmennafélaga í Eyjafirði. Sambandið vinnur að hagsmunamálum aðildarfélaganna og veitir þeim ráðgjöf og þjónustu.

Helstu verkefni framkvæmdastjóra:
• Vinnur samkvæmt samþykktum stjórnar UMSE.
• Samskipti hagsmunaaðila.
• Öll almenn störf á skrifstofu.
• Gerð fjárhagsáætlana og verkefnaáætlana.
• Undirbúningur funda er varða málefni UMSE.
• Yfirumsjón með allri útgáfu.
• Umsjón með vefsíðum og samfélagsmiðlum.
• Önnur verkefni sem stjórn UMSE felur viðkomandi.

Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
• Lipurð í samskiptum.
• Góðir leiðtogahæfileikar.
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2017. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á umse@umse.is

Nánari upplýsingar gefur Bjarnveig Ingvadóttir, formaður, í síma 862 6896 og tölvupósti bjarnveigi@simnet.is

Starf framkvæmdastjóra UMSE