Umhverfisverðlaun 2011

Verðlaunahafar, form. & sveitarstj.
Verðlaunahafar, form. & sveitarstj.

Umhverfisnefnd veitti eigendum Breiðabliks og Jólagarðsins umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar vegna ársins 2011.

Breiðablik:

Eigendur eru Eiríkur Sveinsson og Rannveig Ingvarsdóttir. Eiríkur og Rannveig fluttu í sveitina fyrir tíu árum og síðan þá hafa þau ræktað lóð sína af mikilli eljusemi og hirt hana vel. Áður en þau tóku til við sína uppbyggingu og ræktun var þetta svæði einungis harður melur. Í dag er garðurinn þeirra vel hirtur, með fjölbreyttu gróðurúrvali og fallegri aðkomu.

 

 

Jólagarðurinn:

 Eigendur eru Ragnheiður Hreiðarsdóttir og Benedikt Grétarsson. Jólagarðurinn var stofnaður árið 1995 og hefur vaxið og dafnað mikið síðan þá. Þangað koma árlega þúsundir gesta og því skapast töluvert álag á umhverfi staðarins. Umgengni hefur hins vegar verið til fyrirmyndar og má efalítið þakka það eigendunum sem af mikilli eljusemi hafa unnið ötullega að uppbyggingu staðarins frá upphafi. Garðurinn sem umlykur Jólahúsið sjálft er vel hirtur, þar eru bekkir sem hægt er að setjast á og njóta umhverfisins.