Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar 2021

Fréttir

Öll berum við ábyrgð á ásýnd sveitarinnar og góðar fyrirmyndir skipta máli. Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar eru veitt annað hvert ár fyrir íbúðarhús og nærumhverfi og fyrirtæki í rekstri.

Við óskum íbúum Brúnahlíðarhverfisins og Sandhóla til hamingju með verðlaunin 2021.

Brúnahlíðarhverfið samanstendur af 12 húsum við tvær götur. Það einkennist af fallegum og vel hirtum görðum með grjóthleðslum og fjölbreyttum gróðri. Almenn umgengni er frábær og fallegur heildarsvipur. Brúnahlíðarhverfið fær verðlaun sem ein heild.

Sandhólar er kúabú rekið af Elísabetu Wendel og Jóhannesi Sigtryggssyni. Húsakosti á ýmsum aldri er vel við haldið. Gömul tæki eru gerð upp og höfð sýnileg. Falleg ásýnd að bænum og tækjum snyrtilega upp raðað. Almenn góð umgengni.