Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningar

Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra veitir verkefnastyrki til menningarverkefna og stofn og rekstrarstyrki til menningarmála.  Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019.

Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
  • Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
  • Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista

 Við mat á umsóknum um stofn og rekstrarstyrki lítur uppbyggingarsjóður til eftirtalinna atriða

  • Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs
  • Stuðla að nýsköpun í menningarstarfi
  • Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu

 Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is  á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar.  Tilkynnt verður um úthlutun í apríl. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs sem finna má hér.

Nánari upplýsingar um styrki til menningar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menning@eything.is  sími 464 9935.  Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangiðuppbygging@eything.is


 

 Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar  verða sem hér segir:  

Akureyri               21. og 22. janúar 13-15 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð

Hrísey                26. janúar kl. 10-10.50           Húsi Hákarla Jörundar

Grenivík             26. janúar   kl. 14-15              Skrifstofu Grýtubakkahrepps

Dalvík                27. janúar kl. 10-12                Ráðhúsinu á Dalvík, 3.hæð

Ólafsfjörður       27. janúar kl. 13-14                Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar

Siglufjörður        27. janúar kl. 14.30-16          Bæjarskrifstofu Siglufjarðar

Laugum             1. febrúar kl. 11-12                Skrifstofu Þingeyjarsveitar

Mývatnssveit     1. febrúar kl. 13-14                Skrifstofu Skútustaðahrepps

Kópasker           3.  febrúar 10.30-12              Skrifstofu Norðurþings

Raufarhöfn        3. febrúar kl. 13-15               Skrifstofu Norðurþings

Þórshöfn           4. febrúar  kl. 9-11                Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn

Húsavík            4. febrúar kl. 14-16               Menningarmiðstöð Þingeyinga

Akureyri            8. febrúar  kl. 9-16                Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð

Grímsey               Auglýst síðar

Vitalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi