Fréttayfirlit

Bleikar slaufur í október

Dekurdagar verða dagana 5.–8. október nk. og verða þá seldar m.a. bleikar slaufur til að setja á ljósastaura/póstkassa til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Íbúum Eyjafjarðarsveitar gefst tækifæri til að leggja málefninu lið og mun Lionsklúbburinn Sif í Eyjafjarðarsveit setja upp slaufurnar í lok september og taka þær niður í lok október. Allur ágóði rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Slaufan kostar 5.000 kr. (að lágmarki). Í fyrra söfnuðust rúmar 800 þúsund kr. í Eyjafjarðarsveit. Upphæðin sem safnast saman verður afhent Krabbameinsfélaginu og Dekurdögum í lok október. Sendu póst á selmadogg@simnet.is og pantaðu slaufu.
19.09.2023
Fréttir

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september

Hér í Eyjafjarðarsveit verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í anda vikunnar en líka með sterkum tengingum við verkefni Heilsueflandi Samfélag. Ungmennafélagið Samherjar koma sterkir inn í dagskránna, Skógræktarfélag Eyfirðinga verður með þrjár skógargöngur með leiðsögn, vatnsleikfimi verður í boði í umsjón Helgu Sigfúsdóttur og Píludeild Þórs á Akureyri ætlar að kynna píluíþróttina. Ábúendur á Þormóðsstöðum í Sölvadal ætla að bjóða upp á fossgöngu og þegar kemur að andlegri heilsu bjóða Kyrrðarhofið á Vökulandi og Gaia-hofið á Leifsstaðabrúnum m.a. upp á ýmis Jóga afbrigði og slökun og styrk en nauðsynlegt er að skrá sig á þá viðburði vegna fjöldatakmarkana. Rúsínan í pylsuendanum verður síðan fyrirlesturinn Fimm leiðir að vellíðan frá Sjálfsrækt á Akureyri, en um er að ræða eins og hálfs tíma fyrirlestur þar sem boðið verður upp á súpu og brauð. Nauðsynlegt er að skrá sig á þann fyrirlestur. Allir viðburðirnir eru án endurgjalds og þá er frítt í sund alla dagana sem íþróttavikan stendur. Nánari dagskrá og upplýsingar má finna á vefsíðu og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins.
19.09.2023
Fréttir

Ytri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagslýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 31. ágúst 2023 að vísa skipulagslýsingu, vegna nýs deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði í landi Ytri-Varðgjár í Eyjafjarðarsveit, í kynningarferli skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir 16,2 ha svæði í landi Ytri-Varðgjár sem í gildandi Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 er að mestu skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB12 og að litlum hluta sem skógræktar- og landgræðslusvæði. Nýja deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingu 30-40 íbúðarhúsa með aðkomu frá Veigastaðavegi. Skipulagslýsingin er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 21. september og 5. október 2023, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 623/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 5. október 2023. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulagsfulltrúi. ytri-vardgja-ibudarbyggd_skipulagslysing_2023-08-22.pdf
19.09.2023
Fréttir

Stóri-Hamar 1, Eyjafjarðarsveit – kynning tillögu á breytingu á aðalskipulagi vegna efnistöku

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 14. september 2023 að vísa tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna efnistökusvæðis í landi Stóra-Hamars 1 (L152778), í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsverkefnið snýr að því að skilgreina efnistökusvæði í landi Stóra-Hamars 1 sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Svæðið sem um ræðir er staðsett vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Þá eru sett ákvæði varðandi stærð svæðisins og magn efnis sem heimilt er að taka úr því. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á skrifstofu sveitarfélagsins frá 21. september til 5. október 2023, á heimasíðu sveitarfélagsins www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar www.skipulagsgatt.is undir máli nr. 304/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 5. október 2023 til að gera athugasemdir við tillögurnar. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, 605 Akureyri miðvikudaginn 27. september milli kl. 13:00 og 15:00 og mun skipulagsfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar og taka við athugasemdum um tillögurnar. Skipulagsfulltrúi.
19.09.2023
Fréttir

Espihóll, Eyjafjarðarsveit - auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. júní 2023 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og vegna nýs deiliskipulags fyrir fyrirhugað íbúðarhús á lóðinni Espilaut á landareigninni Espihóli, í auglýsingu skv. 31. gr. og 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin lýtur að því að nýtt 1,5 ha svæði verði skilgreint sem íbúðarsvæði þar sem nú er skilgreint landbúnaðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030. Skipulagsverkefnið snýr að skipulagi lóðar fyrir íbúðarhús á óræktuðu landi. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 21. september og 2. nóvember 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til fimmtudagsins 2. nóvember 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulagsfulltrúi
19.09.2023
Fréttir

Minning Jónas Vigfússon

Í dag fer fram útför Jónasar Vigfússonar verkfræðings og fyrrverandi sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar. Jónas lést við smalamennsku í hlíðum Hagárdals í Eyjafjarðarsveit, 2. september sl. Jónas var sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar 2009-2014 samhliða því að vera skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins. Jónas var mjög virkur í öllu félagsstarfi og sinnti hann ýmsum trúnaðarstörfum sem tengdust sveitarstjórnarmálum, ferðamálum, íþróttamálum og hestamennsku. Hann var meðal annars formaður í Ungmennasambandi Eyjafjarðar, Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga og oftar en einu sinni formaður Funa. Jónas hlaut Gullmerki ÍSÍ og var heiðursfélagi í Hestamannafélaginu Funa í Eyjafjarðarsveit. Á kveðjustund færir Eyjafjarðarsveit Jónasi bestu þakkir fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess. Eyjafjarðarsveit sendir fjölskyldu Jónasar jafnframt innilegar samúðarkveðjur.
18.09.2023
Fréttir

Íþróttavika Evrópu - Dagskrá í Eyjafjarðarsveit

Sjá betur hér
15.09.2023
Fréttir

Leikskólinn Krummakot 36 ára - Afmælissýning í Aldísarlundi

Afmælissýning í Aldísarludni vikuna 14.-22. september - Steinar og skúlptúrar
15.09.2023
Fréttir

Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur er til kl. 12:00 þann 18. október nk. Veittir eru styrir í eftirfarandi þremur flokkum: Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar Verkefnastyrkir á sviði menningar Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar Á heimasíðu SSNE má finna heimasvæði Uppbyggingarsjóðs þar sem hugmyndasmiðir og áhugasamir um fjármagn Sóknaráætlunar geta lesið sér til um eðli sjóðsins og hvað þarf að hafa í huga við umsóknarskrif. Auk þess munu ráðgjafar hjá SSNE standa fyrir rafrænum kynningarfundum þar sem farið verður yfir eðli Uppbyggingarsjóðsins, umsóknargáttina, hagnýt ráð, verklagsreglur og fleira. Einnig verður opið fyrir spurningar er varða umsóknarferlið og einstaka verkefni, kjósi þátttakendur svo. Kynningarfundirnir fara fram í gegnum TEAMS og fá skráðir þátttakendur sent fundarboð. Skráning á rafrænan fund 18. september kl. 16:15 Skráning á rafrænan fund 20. september kl. 12:15 Jafnframt fer fram kynningarfundur á ensku og má finna frétt um Uppbyggingarsjóð á ensku á heimasíðu SSNE: Sign-up for on-line workshop with Q&A
14.09.2023
Fréttir

Fundarboð 616. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 616. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 14. september 2023 og hefst kl. 08:00. Dagskrá: Fundargerðir til staðfestingar 1. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 396 - 2309001F 1.1 2306003 - Brúnaholt - umsókn um byggingarreit fyrir íbúðarhús 1.2 2109022 - Samkomugerði - Frístundabyggð - 2021 1.3 2309002 - Ysta-Gerði lóð - beiðni um breytt staðfang 1.4 2307004 - Hótel í Ytri-Varðgjá Vaðlaskógi - umsagnarbeiðni vegna matsskylduákvörðunar Skipulagsstofnunar 1.5 2309015 - Jódísarstaðir - breyting á aðal- og deiliskipulagi 2023 1.6 2309010 - Flokkun landbúnaðarlands - endurskoðun aðalskipulags 2023 1.7 2202004 - Þjóðkirkjan-Biskupsstofa - Umsókn um stofnun lóðar - Syðra-Laugaland lóð 1.8 2309016 - Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - skipulagsskilmálar við Hrafnatröð 1.9 2303030 - Stóri-Hamar 1 - ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna efnistökusvæðis Fundargerðir til kynningar 2. Norðurorka - Fundargerð 288. fundar - 2309008 Almenn erindi 3. Öldungaráð - 2202017 4. SSNE - Frumhagkvæmnimat líforkuvers - 2212028 5. Búnaðarfélag Saurbæjarhrepps - Eignarhlutur í Sólgarði - 2305013 6. Málstefna Eyjafjarðarsveitar - 2309007 Almenn erindi til kynningar 7. Breytt fyrirkomulag forvarna hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra - 2309009 12.09.2023 Stefán Árnason, skrifstofustjóri  
12.09.2023
Fréttir