- 1 stk.
- 15.05.2014
Flýtilyklar
Opnun Smámunasafnsins
Sverrir Hermannsson afhendir safnið á opnunarhátíð þess. Hólmgeir Karlsson oddviti og Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri veita safninu
viðtöku fyrir hönd sveitarinnar. Til hjónanna Sverris Hermannssonar, húsasmíðameistara og Auðar Jónsdóttur Akureyri. Í dag
26.júlí 2003 er Smámunasafn Sverris Hermannssonar opnað í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit. Það er Eyjafjarðarsveit í senn
heiður og ánægja að fá það hlutverk að varðveita safn ykkar komandi kynslóðum til fróðleiks og gleði. Hafið þið
heila þökk fyrir höfðinglega gjöf sem vitnar um óvenjulega natni og merklegt ævistarf. Sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar