Sleppingar fyrir sauðfé verða þann 15. júní í ár
Fjallskilanefnd hefur ákveðið að seinka sleppingum sauðfjár um nokkra daga vegna aðstæðna svo sem snjóalaga og gróðurs. Þá eru fjáreigendur beðnir um að taka mið af aðstæðum á sinni afrétt eftir þann dag.
Beitartímabil vegna naugripa hefst 20. júní og lýkur 1. október. Beitartímabil hrossa hefst 20. júní og lýkur 10. janúar á næsta ári.
Göngur verða eftirfarandi:
Göngur fara fram 5.-8. september.
Göngur fara fram 20.-22. september.
Hrossasmölun verður 4. október og stóðréttir 5. október.
28.05.2024
Fréttir