Sunnudaginn 28. júní kl 15:00. Ungmennakórinn Geym-mér-ei. Ungmennin höfðu áður sungið saman í barnakór Akureyrarkirkju og myndað þar sterk og góð tengsl og langaði að syngja meira saman. Þá tóku þau málin í sínar hendur og stofnuðu bara kórinn sjálf.
Laugardaginn 18. júlí kl 15:00. Birna Eyjförð Þorsteinsdóttir frá Grenivík. Hún hefur mikið fengist við kvikmyndatónlist en hefur að undanförnu sinnt eigin tónlistarsköpun og gaf út á dögunum lagið Leiddu mig og stefnir á útgáfu á sinni fyrstu smáskífu á næstunni.
Laugardagurinn 8. ágúst kl 15:00. Svavar Knútur kemur aftur til okkar eftir að hafa heillað alla uppúr skónum í fyrra.