Inn að kjarna - Heildræn heilshátíð er nú haldin í þriðja sinn og í fyrsta skiptið hér í sveitinni.
Markmið hátíðarinnar er að fólk fái að kynnast ýmsum leiðum til þess að skapa innra jafnvægi á heildrænan hátt. Mikilvægt er að fá skilning á hvernig maður getur tekið ábyrgð á eigin heilsu og sú þekking liggur innra með okkur. Þekking til þess að skapa innri frið, meiri gleði, hamingju og að öðlast frelsi í eigin lífi.
Margir aðilar eru að koma og bjóða upp á einkatíma, hóptíma, fyrirlestra ásamt því að kynna starfsemi sína og eitthvað af vörum verður til sölu.
Dagskráin verður kynnt á heimasíðu hátíðarinnar og samfélagsmiðlum.
Skipulagsnefnd Inn að kjarna 2026