Handverk fyrir Handverkshátíð 2012

Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla. Prjónað utan um traktor.Undirbúningur Handverkshátíðar og Landbúnaðarsýningar við Hrafnagilsskóla 2012 er kominn á fullan skrið og gengur vel að sögn Esterar Stefánsdóttur framkvæmdastjóra sýninganna. „Kvenfélagskonurnar okkar eru að leggja lokahönd á að prjóna utan um traktorinn á Kristnesi.“

Eins og frægt er orðið hafa þrjú kvenfélög í Eyjafjarðarsveit sameinast um að prjóna utan um gamla Deutz dráttarvél sem verður tenging milli sýninganna tveggja í ár. Samhliða hinni árlegu Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla mun Búnaðarsamband Eyjafjarðar fagna 80 ára afmæli sambandsins með veglegri Landbúnaðarsýningu á svæðinu. 
„Nú förum við svo öll að hefjast handa við að prjóna, sauma eða hekla utan um póstkassana“ segir Ester, en hún hefur í Auglýsingablaði sveitarinnar hvatt íbúana til að skreyta póstkassa sína með handveki í tilefni sýninganna tveggja. Frá og með laugardeginum 7. júlí hefur almenningur kost á að velja fallegasta póstkassann á sérstökum atkvæðaseðlum en kjörkassar verða staðsettir hjá ferðaþjónustuaðilum sveitarinnar.