Opnunarkvöld Handverkshátíðarinnar 2018

Í ár verður fyrirkomulagið á kvöldvökunni aðeins með breyttu sniði. Hún verður haldin á fimmtudagskvöldinu 9. ágúst, en ekki föstudagskvöldinu eins og undanfarið og hvetjum við því alla til að skella sér inn á Davík á fiskisúpukvöld á föstudeginum.

Kvöldvakan verður tileinkuð sýnendum hátíðarinnar í ár, en allir velkomnir ef þeir vilja.

Við viljum sérstaklega benda á það að FYRIRFRAM SKRÁNING ER NAUÐSINSLEG FYRIR 6. ÁGÚST – Skráningu má senda  á handverk@esveit.is, takið fram aldur og fjölda.

Opnunarkvöldið hefst kl.19:30 og stendur til 23:00. Miðaverðið er 4.200 kr. fyrir fullorðna og 2.300 kr. fyrir börn.

Grillveisla verður í boði og þrælskemmtileg skemmtidagskrá. Veislustjóri kvöldsins verður Óli fráfarandi sveitastjóri, Andri Ívars ætlar að sjá um uppistand og svo taka Bjarkey og Þorsteinn nokkur þjóðlög.

Afhending viðurkenninga fyrir fallegasta básinn, handverksmann ársin og nýliða ársins verða einnig veittar á opnunarkvöldinu.

Við hvetjum alla til að skrá sig og eigum skemmtilegt kvöld saman.