Orðsending frá sýningarstjórn Handverkshátíðar

Handverkshátíð
Handverkshátíð

Handverkshátíð 2018 verður haldin dagana 9.-12.ágúst.

Ár hvert streyma til okkar þúsundir gesta af öllu landinu. Við leggjum mikinn metnað í framkvæmd hátíðar og alla umgjörð. Íbúar Eyjafjarðarsveitar leggjast á eitt við framkvæmdina og mikil gleði ríkir. Svo gestir fái notið ár eftir ár þá teljum við nauðsynlegt að þróa sviðsmynd hátíðarinnar. Það laðar fleiri að ef eitthvað nýtt er að sjá. Fyrirkomulag sýningarbása verður því með breyttu sniði þetta árið og viljum við vekja sérstaka athygli á því. Ekki verða lengur ferkantaðir sýningarbásar - veggjum fram á gólf verður fækkað til að auka sýnileika og létta á sýningarsvæðinu. Það er okkar trú að upplifun gesta verði jákvæðari og þeir finni sig enn og meira velkomna þegar sýningarsvæði verði opnara. Við minnum á að verðlaun eru veitt fyrir framúrskarandi handverk og hönnun, ásamt fallegasta sýningarbásnum.

Handverksmarkaður sem staðsettur var í veitingatjaldi verður ekki í ár en hugmyndin er að koma upp Bændamarkaði þar sem framleiðendur matvara kynna og selja sínar eigin afurðir. Áfram verður mögulegt að sækja um aðstöðu fyrir handverk í tjöldum á torgi útisvæðis. Við hvetjum sýnendur til sýnileika á vinnu sinni, það vekur alltaf athygli þegar handbragð og vinnulag er sýnt á staðnum.

Fleiri breytingar eru í farvatninu svo við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með og gleðjast yfir þeim fyrirætlunum að gera hátíð okkar allra enn og betri og vænlegri til heimsókna ár hvert.

Umsóknareyðublað verður aðgengilegt á heimasíðu: www.handverkshatid.is Umsóknarfrestur er frá 20.mars - 15.apríl 2018.

Handverkshátíð