Sætaferðir á Handverkshátíð

Handverkshátíð er nú komin í samstarf við Saga Travel.    
Fastar sætaferðir verða í boði alla sýningardagana  kl: 12:30,  14:30 og 16:30 frá höfuðstöðvum þeirra Kaupvangsstræti 4 og til baka síðar um daginn. Upplýsingar í síma: 558-8888.
Hátíðin verður sett kl: 12 í dag og er opin fim.-lau. 12-19 og
sun 12-18. Sýnendur af öllu landinu hafa komið sér fyrir á 91 sýningarbás. Það er einkennandi hversu fjölbreyttar og vandaðar vörur eru á boðstólnum í ár og mikill metnaður lagður í hvern sýningarbás. Fjölbreytt dagskrá á útisvæðinu svo allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á Handverkshátíð 2014