Stórlax á Handverkshátíðinni um aðra helgi

Undirbúningur 22. Handverkshátíðar stendur sem hæst enda aðeins vika í hátíðina. Sýningin verður sett fimmtudaginn 7. ágúst og lýkur sunnudaginn 10. ágúst. Sýningin hefur fengið að gjöf 1,5 m háa gestabók klædda laxaroði og verður hún staðsett í hjarta sýningarinnar og hvetjum við gesti til að kvitta fyrir heimsókn sína í hana. Sýningin verður fjölbreytt líkt og undanfarin ár. 91 sýnandi af öllu landinu selur skart, fatnað, fylgihluti, textíl, keramik og gler og á útisvæðinu er stórt tjald og skálar með ýmiskonar íslenskum matvælum. Félag ungra bænda á Norðurlandi býður upp á húsdýrasýningu auk skemmtilegra viðburða, Búsaga sýnir gamlar vélar og þjóðháttafélagið Handraðinn setur upp miðaldabúðir. Veitingasala, handverksmarkaður og lifandi tónlist alla dagana. Uppskeruhátíðin fer fram á laugardagskvödinu. Matreiðslumenn Greifans sjá um glæsilega grillveislu og meðal þeirra sem fram koma eru Pálmi Gunnarsson ásamt hljómsveit, Álftagerðisbræður og prestatíó skipað séra Hildi Eir, séra Oddi Bjarna og séra Hannesi Blandon kemur sérstaklega saman fyrir þetta kvöld og slær á létta strengi. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og búa aðstandendur hátíðarinnar sig undir að taka á móti 15-20.000 gestum.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.handverkshatid.is