Sunnudagur til sólar

Enn var slegið met í miðasölu Handverkshátíðar í dag, fyrir utan mikinn fjölda endurkomugesta. Þá skoðuðu einnig fjölmargir Landbúnaðarsýningu Búnaðarsambands Eyjafjarðar á svæðinu. Eindæma veðurblíða lék við gesti og starfsfólk sýninganna.



Landssamband sauðfjárbænda bauð gestum að smakka á heilgrilluðu lambi og Félag ungra bænda á Norðurlandi stóð fyrir kálfasýningu barna. Að auki bauð dagskrá dagsins upp á hrútaþukl og rúningskeppni, þar sem bæði oddviti Eyjafjarðarsveitar og framkvæmdastjóri sýninganna þurftu að lúta lægra haldi fyrir ungum rúningskappa. Keppenduna má öll sjá á meðfylgjandi mynd. 

Fleiri myndir sem teknar voru í dag má sjá hér