Stóri Plokkdagurinn sunnudaginn 28. apríl

Fréttir

Nú er snjórinn óðum að hverfa í sveitinni og þá kemur gjarnan í ljós ýmislegt rusl í vegköntum og rúlluplast á girðingum hér og þar.
Vill atvinnu- og umhverfisnefnd því hvetja íbúa til að tína rusl og e.t.v. stinga upp illgresi í kringum sig. T.d. er kjörið að nýta Stóra Plokkdaginn, sem er landsátak í ruslatínslu, til útveru og tiltektar.
Með sameiginlegu átaki gerum við sveitina okkar fallega.
Atvinnu- og umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar.