Auglýsingablaðið

872. TBL 02. febrúar 2017 kl. 12:57 - 12:57 Eldri-fundur

Sveitarstjórnarfundur
492. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, miðvikudaginn 8. febrúar og hefst hann kl. 15:00. 
Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Frá Félagi aldraðra í Eyjafirði.
Námskeið í vatnsleikfimi, fyrir 60 ára og eldri, hefst miðvikudaginn 8. febrúar kl. 15:00 í endurhæfingarlauginni í Kristnesi. Kennari er Kirsten Godsk.
Allir 60 ára og eldri eru velkomnir.
Stjórnin

 

Aðalfundur
Kvenfélagið Hjálpin heldur aðalfund sinn í Sólgarði föstudaginn 10. febrúar kl. 20:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf og að sjálfsögðu glæsilegar veitingar í boði hóps 1. Konur sem langar að taka þátt í skemmtilegum og gefandi félagsskap eru hvattar til að mæta og kynna sér starfsemina.
Sjáumst sem flestar, stjórnin

 

Aðalfundarboð kvenfélagsins Iðunnar
Aðalfundur verður laugardaginn 11. febrúar 2017 kl. 11:00 í Laugarborg. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn sér um léttan málsverð. Nýjar konur ávallt velkomnar.
Stjórnin

 

Frisbígolfæfingar Umf. Samherja
Æfingar eru alla mánudaga í íþróttahúsinu á Hrafnagili sem hér segir:
Yngsta stig og byrjendur kl. 17:00-18:00
Eldri kl. 18:00–19:00
Frisbígolf er íþrótt sem hentar öllum aldurshópum og foreldrum velkomið að mæta með börnunum sínum. Allir velkomnir að koma og prufa :)
Kveðja, frisbígolf þjálfararnir

 

Kæru þorrablótsgestir
Um leið og við þökkum ykkur kærlega fyrir komuna á þorrablótið s.l. laugardags-kvöld, vekjum við athygli á örfáum óskilamunum; svartur jakki, eitt skó par, örfá staup, klút og tappatogara. Sjá myndir á fb síðunni Þorrablót Eyjafjarðarsveitar 2017. Munina er hægt að nálgast í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar :)
Kveðja nefndin

 

REFILSAUMUÐ SAGA LANDNEMA
Einstök sýning á yfir 300 refilsaumuðum veggmyndum verður opnuð í Tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 4. febrúar kl. 14. SCOTTISH DIASPORA TAPESTRY segir sögu Skota sem hafa flust til annarra landa í gegnum aldirnar og afrekum þeirra. Veggmyndirnar eru saumaðar af afkomendum skoskra innflytjenda í 33 löndum og hefur sýningin verið á ferð á milli þeirra sl. tvö ár. Við hana munu nú bætast fimm myndir frá Íslandi sem segja sögu systranna Þórunnar hyrnu og Auðar djúpúðgu Ketilsdætra sem komu hingað til lands með fjölskyldur sínar frá Skotlandi á níundu öld.

Sýningin stendur yfir alla daga frá 4. - 26. febrúar frá kl. 14:00 til 18:00.

Íslenska verkefninu er stýrt af Bryndísi Símonardóttur fjölskylduþerapista og handverkskonu í Eyjafjarðarsveit. Bryndís teiknaði altarisdúk fyrir Hóladómkirkju og óf, teiknaði og saumaði altarisdúk í Saurbæjarkirkju.

Myndirnar fimm eru teiknaðar af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur teiknara og rithöfundi sem hannaði og teiknaði Njálurefilinn, hannaði og stjórnaði teiknivinnu við Vatnsdælu á refli og leiddi refilverkefni um Darraðarljóð í Caithness á Skotlandi. Sögulegur ráðgjafi við hönnun myndanna er Vilborg Davíðsdóttir þjóðfræðingur og rithöfundur sem skrifað hefur um líf landnámskonunnar Auðar djúpúðgu í tveimur skáldsögum, Auði og Vígroða, og vinnur nú að þeirri þriðju sem kemur út í haust.

Gestir á sýningunni í Laugarborg geta fengið að sjá hvernig saumaskapurinn fer fram. Allar veggmyndir Scottish Diaspora Tapestry eru saumaðar af fjölda fólks í hinum ýmsu löndum og munu fimm konur í Eyjafirði sauma landnámskvennamyndirnar.

Að verki loknu bætast myndirnar af Þórunni hyrnu og Auði djúpúðgu við heildarsýninguna sem mun hafa fast aðsetur í sérsmíðuðu sýningarhúsnæði í bænum Prestonpans í Skotlandi en þar var háð söguleg orrusta í uppreisn Jakobíta gegn ensku konungsvaldi árið 1745.

Heimasíða Scottish Diaspora Tapestry er http://www.scottishdiasporatapestry.org/
Facebooksíða sýningar  Landnám frá Skotlandi: Sýningaropnun

 

Getum við bætt efni síðunnar?