Deleríum Búbónis!

Kirkjukór Grundarsóknar heldur tónleika í Laugarborg klukkan 20:00 að kvöldi síðasta vetrardags þ.e. 24. apríl og er aðgangur ókeypis. Kórinn hefur síðustu misserin verið að æfa lög Jóns Múla og Jónasar Árnasona í útsetningu Þorvaldar Arnar Davíðssonar kórstjóra. Við förum yfir lögin úr Deleríum Búbónis ásamt fleiri perlum úr smiðju þeirra bræðra.
Teflt er fram kór og hljómsveit og verður enginn svikinn af þessari kvöldstund.