Félagsmálanefnd

91. fundur 11. desember 2006 kl. 00:16 - 00:16 Eldri-fundur

91. fundur félagsmálanefndar haldinn í fundarsal sveitarstjórnar að Syðra- Laugalandi miðvikudaginn 8. október 2003 kl. 20.30

Mættir: María Tryggvadóttir, Ingjaldur Arnþórsson, Eygló Daníelsdóttir, Hrefna Ingólfsdóttir, Aðalheiður Harðardóttir og Bjarni Kristjánsson, sveitarstjóri.

 

Dagskrá

1. Erindi frá sveitarstjórn um ráðstöfun íbúðar í Reykhúsum 4c
2. önnur mál

 

Afgreiðsla:

 

1. Erindi frá sveitarstjórn um ráðstöfun íbúðar í Reykhúsum 4c
Borist hefur ósk um að sveitarfélagið innleysi íbúð samkvæmt ákvæði þar um. þar sem komnar eru umsóknir um leigu á íbúðinni var ákveðið að leggja til að sveitin selji hana ekki fyrst um sinn heldur leigi hana út.

 

2. önnur mál
Samþykkt var að fela formanni nefndarinnar í samvinnu við sveitarstjóra að vinna að gerð verklagsreglna um veitingu viðbótarlána. Jafnframt að móta tillögu að reglum um úthlutun leiguíbúða í eigu sveitarfélagsins (íbúðir aldraðra).

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.25

Getum við bætt efni síðunnar?