Auglýsingablaðið

1190. TBL 26. apríl 2023

Auglýsingablað 1190. tbl. 15. árg. 26. apríl 2023.

 

Skrifstofur Eyjafjarðarsveitar og skipulags- og byggingarfulltrúa verða lokaðar frá kl. 11:30 föstudaginn 28. apríl.
Opið verður frá og með þriðjudeginum 2. maí á auglýstum opnunartíma kl. 10:00-14:00.



Sumarstarf í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar 2023

Óskum eftir að ráða karlmann til starfa í vaktavinnu í sundlauginni í sumar.

Helstu verkefni eru m.a.:
• Öryggisgæsla í sundlaug
• Þjónusta við gesti sundlaugar og tjaldsvæðis
• Þrif á húsnæði og útisvæði
• Afgreiðsla

Hæfniskröfur:
• Viðkomandi verður að vera orðinn 18 ára
• Geta staðist hæfnispróf sundstaða skv. reglum um öryggi á sundstöðum
• Hafa góða athyglisgáfu
• Eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt við ef slys ber að höndum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Hafa gott vald á íslensku og ensku
• Þjónustulund
• Stundvísi
• Jákvæðni

Viðkomandi þarf að geta tekið þátt í sundprófum og skyndihjálparnámskeiði dagana 22.–24. maí.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2023.
Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Tekið er á móti umsóknum á netfangið sundlaug@esveit.is.

Nánari upplýsingar um starfið og fyrirkomulag vakta gefur Karl í síma 691-6633.



Skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla, vorið 2023

Dagana 2.–5. maí stendur yfir skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla.
Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að skrá nemendur í verðandi
1. bekk (börn fædd 2017) og einnig aðra nýja nemendur sem væntanlegir
eru í skólann næsta haust. Á sama tíma er tekið á móti tilkynningum um flutning nemenda af svæðinu.
Þeir sem ætla að notfæra sér frístund næsta vetur (fyrir nemendur í 1.-4. bekk) eru beðnir að tilkynna það þessa sömu daga, skráning er ekki bindandi.
Skráning fer fram hjá ritara skólans milli kl. 9:00-14:00 í síma 464-8100.
Skólastjóri.



Vinnuskólinn 2023

Skráning í vinnuskólann sumarið 2023 fer fram á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
https://www.esveit.is/is/thjonusta/menntun-1/vinnuskoli



Aðalsafnaðarfundur Kaupangssóknar í dag kl. 16:30,
miðvikudaginn 26. apríl í Kaupangskirkju
Vekjum athygli á tímasetningunni.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd.



Fögnum verklokum á risakúnni Eddu
þann 1. maí kl. 14:00 hjá henni Beate í Kristnesi. Boðið verður upp á drykki og skálað fyrir Eddu og verkalýðsdeginum þann dag.
Allir sveitungar og velunnarar velkomnir.



~Hófadynur, Hestalagaveisla~

Söngkonurnar í Jódísi bjóða til tónlistarveislu á Græna Hattinum fimmtudaginn 27. apríl kl. 21:00-23:00. Blandað verður saman huggulegheitum og hamagangi til heiðurs hestinum. Hér er ferðinni alveg glæný dagskrá sem öll tengist hestum eða hestamennsku á einhvern hátt. Kántrýskotin tónlist með útúrdúrum og gjörningum í ýmsar áttir. Miðaverð 3.900 kr.

Ekki er skilyrði að vera hestamaður því allir ættu að geta fundið fjörið og frelsið og friðinn sem eru meðal þeirra tilfinninga sem tónlistin laðar fram.

Meðleikarar: Valmar Väljaots, Kristján Edelstein, Pétur Ingólfsson og Halldór Hauksson (Halli Gulli).

Öll hjartanlega velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.
Rósa María, Herdís, Inga Bára og Margrét.
Tónleikarnir eru styrktir af Norðurorku.

Getum við bætt efni síðunnar?