Auglýsingablaðið

1037. TBL 07. apríl 2020

Auglýsingablað 1037. tbl. 12. árg. 7. apríl 2020.

 


Sveitarstjórnarfundur

548. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 16. apríl og hefst hann kl. 15:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Veganesti í páskana

Nú þegar páskafrí skólanna ganga í garð er mikilvægt að hafa nokkur atriði í huga varðandi afþreyingu, samkomur og fjarlægðir.

Við þurfum að berjast með þolinmæðina að vopni í hið minnsta einn mánuði í viðbót og leggja okkar af mörkum til að draga úr smithættu Covid-19 milli heimila og hópa. Við þurfum að lágmarka heimsóknir og hvetja krakkana okkar til að leika sér sjálfir en ekki í snertingu eða miklu návígi við þá sem þau almennt ekki umgangast. Um þetta gildir tveggja metra reglan og er vert að benda á að sparkvellir og leiksvæði eru talin hættusvæði varðandi smitleiðir og foreldrar hvattir til að leggjast á eitt með að draga úr því að krakkar hittist í hópum á þeim stöðum.

Við þurfum líka að bera virðingu fyrir heilbrigðiskerfinu okkar sem nú er undir miklu álagi vegna faraldursins. Við þurfum að velja okkur afþreyingu á næstu misserum sem ekki er til þess fallin að auka álag á heilbrigðiskerfið og viðbragðsaðila heldur draga úr því. Það er því heppilegra að stunda afþreyingu á þessum tímum sem er með litla hættu á slysum, létt ganga er þannig heppileg og léttar æfingar heimafyrir mjög góðar.

Það er um að gera að njóta þess að lesa góða bók um páskana og taka þátt í lestrarátakinu „Tími til að lesa“, draga fram spilin eða skoða það úrval afþreyingarefnis sem í boði er á streymiveitum. Þá geta tölvuleikir einnig hjálpað til við að rjúfa samfélagslega einangrun á þessum tímum þó að sjálfsögðu þurfi að stilla skjátímanum í hóf.

Við skulum rækta fjölskylduna, heimilið og sálina og nálgast frekar með tækninni þá sem ekki á heimilinu búa. Við skulum forðast ferðalög, sumarhús og að stuðla að miklum gestagangi. Við skulum öll reyna að hjálpast að á næstu vikum og draga úr áhættunni.

Stöndum saman, stöndum í fjarlægð.

Páskakveðja,
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri.

 


Bókasafn Eyjafjarðarsveitar lokað vegna Covid-19

Bókasafnið er því miður lokað og verður áfram meðan samkomubann er í gildi.
Upplýsingar um opnun munu birtast á heimasíðu sveitarfélagsins og í auglýsingablaðinu.

 

Kæru sveitungar
Við viljum byrja á því að þakka þeim fjölmörgu sem hafa styrkt okkur og sett dósir og flöskur í þar til gerðan gám á gámasvæðinu norðan Hrafnagilsskóla. Þessir peningar koma sér vel og fara allir í ferðasjóðinn okkar.
Okkur langar að biðja fólk um að passa að ekki sé rusl í flöskupokunum sem fara í gáminn og að dósirnar séu ekki beyglaðar saman. Foreldrar okkar hafa lent í vandræðum í Endurvinnslunni út af þessu.
Við sendum ykkur óskir um gleðilega páska, nemendur í 10. bekk.

 


Volare

Sótthreinsandi handáburðurinn kemur fyrir páska.
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 866-2796 eða á facebook; Hrönn Volare.
Að öllu jöfnu er best að panta fyrir kl. 20:00 á sunnudögum og vörurnar koma á miðvikudögum.
Gleðilega páska, Hrönn, Volare söluráðgjafi.

 

Aprílgabb sem birt var í síðasta auglýsingablaði:

Skipulags- og byggingarfulltrúi minnir á að sumardagurinn fyrsti sé fimmtudaginn 23. apríl og boðar að þeir bændur sem á landi sínu láti snjó standa í sköflum 1,0 m háum eða meira eftir þann tíma muni sæta sektum.

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?