Fréttayfirlit

Daginn eftir Handverkshátíð

Það var allur búnaður farinn úr húsi fyrir miðnætti í gær - ótrúlegt þrekvirki sem fólkið hér í sveitinni vann þessa helgi.  Ég vil þakka öllu því góða starfsfólki sem kom að þessu - hátíðin gekk glimrandi vel því þið lögðuð allt í þetta :)   Ég er stolt af því að fá að vera í þessum hópi ....   Sýnendum þakka ég kærlega fyrir komuna og góða samveru :)    Dásemdarkveðja Dóróthea Jónsdóttir

Langar að benda ykkur á að það eru komin stór myndasöfn á Facebook-síðu hátíðarinnar Handverkshátíð á Facebook
10.08.2010

Aðsóknarmet slegin á Handverkshátíð

Það má með sanni segja að Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla hafi farið vel af stað þessa fyrstu tvo daga.  Aðsóknarmet voru slegin strax fyrsta daginn.  Hátíðin verður opin í dag sunnudag og á morgun mánudag klukkan 12-19.  Fjöldi viðburða verða á dagskrá en hæst ber að nefna svokallaðan brunaslöngubolta en sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar mun etja kappi við nágrannasveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu.  Leikar hefjast klukkan 14:30.  Rúningur, tískusýningar, söguþorp, fegurðarsamkeppni landnámshænsna og fleira hafa glatt gesti hátíðarinna og mun gera næstu tvo daga.   Á hátíðarsamkomu í gærkvöldi voru verðlaun veitt fyrir sölubás ársins en Volcano design og Krista design fengu þann titil.  Einnig er Handverksmaður ársins 2010 valinn hvert ár og nú var það Ragnar Arason rennismiður frá Höfn í Hornafirði sem fékk þennan eftirsóknarverða titil.



08.08.2010

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar skorar á nágranna sína

Um næstu helgi verður Eyjaförður undirlagður í hátíðum en Handverkshátíð verður haldin dagana 6.-9.ágúst.  Meðal viðburða í tengslum við hátíðina verður brunaslöngubolti þar sem sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu munu takast á.  Leikar munu fara fram á fótboltavelli við hátíðarsvæðið n. k. sunnudag og hefjast kl. 14.  Búist er við fjörugum kappleik.  Sveitarstjórnir sem taka þátt eru Grýtubakkahreppur, Svalbarðasstrandahreppur, Hörgárbyggð, Akureyri og Eyjafjarðarsveit.

Brunaslöngubolti fer þannig fram að spilað er á fótboltavelli með tvö mörk.  Markmaður hvors liðs fær brunaslöngu sem nýta skal til varnar.  Liðin eiga svo að keppast við að skora mark hjá andstæðingnum og þá sérstaklega að komast framhjá brunaslöngumarkmanninum.

04.08.2010

Tískusýningar

Hvern dag klukkan 16 munu hönnuðir standa að tískusýningu á svæðinu. 
Viðburður sem vert er að skoða því mikið af flottum hönnuðum og framleiðendum taka þátt.



04.08.2010

Forndráttarvélar til sýnis

Það er mikill áhugi fyrir forndráttarvélum í Eyjafjarðarsveit - áhugahópur stefnir nú að uppbyggingu á búvélasafni.  Hluti vélanna verður til sýnis á hátíðinni.



03.08.2010

Félag landnámshænsna

Félag landnámshænsna tekur þátt í hátíðinni og verða með sýningu á 60 fuglum.   Þar verður keppt um fallegasta fuglinn en gestir hátíðarinnar munu kjósa.  Úrslit verða kunngjörð á sunnudeginum og titillinn er alltaf mjög eftirsóttur svo ekki sé meira sagt.  Ungar munu skríða úr eggjum á hátíðinni og mun ungviðið örugglega gleðja auga hátíðargesta. 



03.08.2010

Rúningur og söguþorp

Á útisvæði verður komið upp söguþorpi en það eru Gásahópur og Handraðinn/Laufáshópur sem ætla að taka höndum saman við að glæða fallegt útisvæði lífi.  Hugmyndin er að sýna eins konar tímavél þar sem tímabil landnáms allt til dagsins í dag er spannað í handverki.  Baðstofa og miðaldatjöld og tilheyrandi verkvinna verður viðhöfð í þessu spennandi söguþorpi.  Birgir Arason í Gullbrekku mun sýna rúning hátíðardagana, ullin verður spunnin og unnin í söguþorpinu.


02.08.2010

Gísli Einarsson mun setja hátíðina

Setning hátíðarinnar verður klukkan 11:30 föstudaginn 6.ágúst.  Gísli Einarsson ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni og setja hátíðina formlega þetta árið.


27.07.2010

Nú eru einungis tvær vikur til stefnu

Nú eru einungis tvær vikur í Handverkshátíð og uppsetning svæðis er komin í gang.  Þó er einungis brot af þeim búnaði komið sem á eftir að koma hingað norður til okkar.  Til gamans þá má nefna að hátíðin er að breytast í skemmtilega blöndu af lífi og fjöri enda veitir ekki af að krydda svona viðburði vel.  Allt gert með það fyrir sjónum ...
22.07.2010

Uppsetning á Handverkshátíð 2010 formlega hafin

Uppsetning fyrir Handverkshátíð í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar og Hrafnagilsskóla komin vel í gang - nú er að setjast yfir planið og láta púslið ganga upp :) Það þarf að koma fyrir vel á annað hundrað .....


Íþróttasalur klukkan 08 laugardaginn 10.júlí 2010

11.07.2010