Auglýsingablaðið

1075. TBL 13. janúar 2021

Auglýsingablað 1075. tbl. 13. árg. 13. jan. 2021.


Hreyfistyrkur til eldri borgara, íbúar á aldrinum 6-9 ára fá frítt árskort og námsmenn 50% afslátt af árskorti

Eldri borgarar í Eyjafjarðarsveit fá hreyfistyrk gegn kaupum á árskorti í sundlaug og líkamsræktaraðstöðu sveitarfélagsins frá og með 1. janúar 2021 og börn á aldrinum 6-9 ára sem búa í sveitarfélaginu fá frítt árskort.

Er nú unnið að útfærslu hreyfistyrks sem sveitarstjórn ákvað að veita öllum eldri borgurum sem þess óska eftir kaup á árskorti séu þeir íbúar í sveitarfélaginu. Styrkurinn var ákveðinn um leið og ný gjaldskrá var samþykkt með breyttum afsláttakjörum eldri borgara af árskorti íþróttamiðstöðvarinnar.

Námsmenn og eldri borgarar fá nú 50% afslátt af árskorti og geta eldri borgarar í sveitarfélaginu að auki sótt um hreyfistyrk. Útfærsla og upphæð styrksins verður unnin í Lýðheilsunefnd og kynnt í kjölfarið fyrir íbúum.

Námsmenn á öllum aldri geta nú mætt með staðfestingu á námi og fengið árskort á 50% afslætti en á undanförnum árum hafa þau kjör eingöngu verið í boði fyrir 18 og 19 ára einstaklinga.

Samhliða þessu var ákveðið að styrkja öll börn á aldrinum 6-9 ára sem búa í sveitarfélaginu með því að gefa þeim árskort í sund og koma þannig til móts við ungt fjölskyldufólk. Börn og ungmenni á aldrinum 10-17 ára greiða 2.500 kr. fyrir árskort sín en frá 10 ára aldri er börnum heimilt að fara í sund án forráðamanna.

Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar er birt á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.

 


Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
Frá og með næsta þriðjudegi, 19. janúar, verður bókasafnið opið almenningi sem hér segir:

Þriðjudagar kl. 16:00-19:00.
Miðvikudagar kl. 16:00-19:00.
Fimmtudagar kl. 16:00-19:00.

Ef einhverjar breytingar verða á sóttvarnarreglum verður breyttur opnunartími auglýstur á vef Eyjafjarðarsveitar esveit.is og í sveitapóstinum.

 


Vefsölusíða Matarstígsins
Við viljum vekja athygli á því að vefsölusíðan okkar á slóðinni www.helgimagri.is er líka fyrir sveitunga okkar. Matvörur beint frá framleiðendum innan Matarstígsins. Pöntunarfrestur er í viku hverri til hádegis á fimmtudögum og afhending er eftir hádegi á föstudögum eða eftir nánara samkomulagi.

Styrkjum framleiðendur í heimabyggð og fáum vörurnar afhentar með Vistvænni dreifileið.

Nánar á helgimagri.is.

Matarstígur Helga magra – helgimagri@esveit.is.

 

 

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?