Auglýsingablaðið

1228. TBL 31. janúar 2024
Auglýsingablað 1228. tbl. 16. árg. miðvikudaginn 31. janúar 2024.
 
 

Sveitarstjórnarfundur
626. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 8. febrúar og hefst hann kl. 8:00.
Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.
 
 

Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir að ráða leikskólakennara eða starfsfólk með aðra háskólamenntun til starfa - Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024
 
● Tveir kennarar í 100% ótímabundnar stöður á deild með yngri börnum.
Leikskólakennara eða starfsmenn með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi.
 
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 79 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
 
Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2024/2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
• Hæfni samkvæmt reglugerð 1355/2022 um almenna og sérhæfða hæfni kennara og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Færni í að vinna í stjórnendateymi.
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
• Góð íslenskukunnátta skilyrði.
• Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
 
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is
 
 

Kvenfélagið Iðunn – Aðalfundur 3. febrúar kl. 11:00
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 3. febrúar kl. 11:00 í Laugarborg.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýjar konur velkomnar.
Getum við bætt efni síðunnar?