Nú líður senn að upphafi vinnuskólans sumarið 2026, en fyrsti vinnudagur verður miðvikudaginn 10. júní.
Unnið verður í vinnuskólanum ýmist fyrir hádegi, kl. 08:00–12:00 eða eftir hádegi kl. 12:30–16:30. Einnig er hægt að óska eftir því að vinna allan daginn. Ef einhverjar sérstakar óskir eru um vinnutíma, þ.e. fyrir hádegi, eftir hádegi eða allan daginn, væri gott að fá þær óskir inn sem fyrst. Reynt verður að koma til móts við óskir eins og hægt er.
Vinnutími eftir aldri er eftirfarandi:
- 14 ára: 100 vinnustundir yfir sumarið
- 15 ára: 120 vinnustundir yfir sumarið
- 16 ára: 160 vinnustundir yfir sumarið
14 og 15 ára vinna 4 tíma á dag, fjóra daga vikunnar, frá mánudegi til fimmtudags.
16 ára vinna 4 tíma á dag, fimm daga vikunnar, frá mánudegi til föstudags.
Fyrsta vinnudaginn mæta allir kl. 08:00 og verða búnir kl. 12:00. Þann dag verður farið yfir fyrirkomulag vinnunnar, vinnutími kynntur fyrir unglingunum og farið létt af stað í verkefnin.
Unglingarnir þurfa ávallt að koma klæddir eftir veðri og tilbúnir í fjölbreytt verkefni. Við hvetjum þau einnig til að mæta með nesti, sérstaklega þau sem verða allan daginn, þar sem enginn hádegisverður er í boði.
Öll frí þarf að tilkynna sérstaklega og er gott að gera það í gegnum netfangið
vinnuskoli@esveit.is.
Veikindi og önnur forföll þarf einnig að tilkynna. Hægt er að gera það með því að hringja eða senda SMS í síma 6962082. Það er númerið hjá Atla Fannari, sem verður verkstjóri vinnuskólans í sumar. Sóley Anna verður aðstoðarflokkstjóri með honum.
_________________________________________________________________
Ungmenni í Eyjafjarðarsveit hafa verið þekkt fyrir dugnað og liðlegheit og leggur Eyjajarðarsveit áherslu á að í vinnuskólanum unglingar samfélagsins góð og fagleg vinnubrögð í þeim verkfnum sem þau taka að sér. Vinnuskóli Eyjafjarðarsveitar er starfræktur 9-10 vikur ár hvert og er ætlaður unglingum á aldrinum 14 – 16 ára.
Markmið Vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar er að bjóða upp á:
- hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir 14, 15, og 16 ára unglinga.
- fjölbreytt störf á mismunandi vinnusvæðum.
- fræðslu um notkun og meðferð algengra verkfæra.
- fræðslu um náttúru og umhverfi
- reynslu og þekkingu sem að gagni kemur á sviði verklegra framkvæmda.
Fræðslustarf:
Á starfstíma Vinnuskólans er stefnt að því að koma á sérstökum fræðsludögum. Um er að ræða fræðslu um umhverfismál, atvinnumál og safnafræðslu. Í tengslum við fræðsludagana er farið í sund eða annað þess háttar.
Árlegt upphaf vinnuskóla er auglýst í Auglýsingablaði Eyjafjarðarsveitar á hverju vori.
Reglur vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar má finna hér.
Skráning í Vinnuskólann er rafræn og er miðað við að skráningu sé lokið um miðjan maí ár hver.
Skráningarform fyrir Vinnuskólann.