Göngu- og hjólaleiðir í Eyjafjarðarsveit eru mikilvægur hluti af heilsueflandi samfélagi og daglegri hreyfingu íbúa. Með góðu aðgengi að göngu- og hjólaleiðum skapast tækifæri til reglulegrar hreyfingar, aukinnar útivistar og sjálfbærra ferðamáta í daglegu lífi. Slíkar leiðir styðja bæði líkamlega og andlega heilsu, efla félagslega virkni og styrkja tengsl fólks við nærumhverfi sitt.
Göngu- og hjólastígurinn milli Hrafnagilshverfis og Akureyarbæjar er um 10 km malbikaður stígur sem býður upp á skemmtilega og aðgengilega leið til að ganga, hjóla eða hlaupa í náttúrulegu umhverfi meðfram vestri hluta Eyjafjarðarár. Hann er vinsæll hjá fólki á öllum aldri og tengist stígurinn göngu- og hjólastígakerfi Akureyrar.