Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar

Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar var stofnað 26. janúar 2011. 

Tilgangur félagsins er:
1.    Að efla ferðaþjónustu á félagssvæðinu, þannig að hún verði til sem mestra hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins.
2.    Að bæta þjónustu við það fólk sem ferðast um sveitina og dvelur þar sem gestir.
3.    Að vinna að því að öll þjónusta og fyrirgreiðsla við ferðamenn í sveitinni verði með  menningarlegum og snyrtilegum blæ og hlutaðeigandi til sóma.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná:
1.    Með því að vinna að samræmingu og samvinnu ferðaþjónustu á félagssvæðinu og beita sér fyrir sem fjölbreyttastri þjónustu við ferðafólk.
2.    Með útgáfu kynningar- og auglýsingabæklinga og dreifingu þeirra, svo og annarri upplýsinga-starfsemi.
3.    Með öflun upplýsinga um nýjungar í ferðamálum og með því að stuðla að opinni umræðu um ferðamál.
4.    Með því að leita nýrra leiða til að laða að ferðamenn til sveitarinnar og vekja athygli samfélagsins og annarra á gildi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar í sveitinni.
5.    Með því að efla vitund íbúanna fyrir varðveislu fagurra staða og fyrir snyrtilegri umgengni við landið.
6.    Með því að koma fram sem málsvari innan samtaka ferðamálafélaga svo og á öðrum skildum vettvangi, eftir því sem tilefni er til.
7.    Með annarri starfsemi sem talin er ferðamálum á félagssvæðinu  til framdráttar.

Heimilisfang Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar er hjá formanni hverju sinni.
Netfangið er ferdamal@esveit.is

Síðast uppfært 13. nóvember 2025
Getum við bætt efni síðunnar?