Félagsmál

Félagsmál

Eyjafjarðarsveit veitir íbúum félagslega þjónustu í samstarfi við velferðarsvið Akureyrarbæjar. Þjónustan felur meðal annars í sér félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, húsnæðisstuðning og stuðning við einstaklinga og fjölskyldur.

Þurfir þú upplýsingar eða aðstoð við að sækja um þjónustu geturðu haft samband við skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í síma 463 0600 eða á esveit@esveit.is.

Félagsleg ráðgjöf

Velferðarsvið Akureyrarbæjar veitir íbúum Eyjafjarðarsveitar félagslega ráðgjöf samkvæmt þjónustusamningi sveitarfélaganna. Ráðgjöfin getur meðal annars varðað fjárhag, húsnæði, uppeldi, fjölskylduaðstæður og þörf fyrir stuðning.

Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar aðstoðar við að koma erindum í réttan farveg.

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð er ætluð einstaklingum og fjölskyldum sem geta ekki séð fyrir nauðsynlegri framfærslu með eigin tekjum eða öðrum greiðslum. Réttur til aðstoðar er metinn út frá aðstæðum umsækjanda og gildandi reglum.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar tekur við umsóknum, metur rétt til aðstoðar og afgreiðir þær samkvæmt þjónustusamningi sveitarfélaganna. Eyjafjarðarsveit annast greiðslu samþykktrar aðstoðar til íbúa sveitarfélagsins.

Umsækjendur þurfa að leggja fram upplýsingar um fjárhag sinn og þau gögn sem óskað er eftir við afgreiðslu umsóknar.

Sækja um í þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur

Almennar húsnæðisbætur

HMS annast almennar húsnæðisbætur til leigjenda sem uppfylla skilyrði þeirra. Sótt er um hjá HMS.

Upplýsingar um húsnæðisbætur og umsóknir hjá HMS.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Eyjafjarðarsveit veitir sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Um er að ræða stuðning sem sótt er um sérstaklega og er aðgreindur frá almennum húsnæðisbótum HMS.

Upplýsingar og umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning.

Félagslegt leiguhúsnæði

Tekið er við umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði þegar íbúðir eru auglýstar lausar til umsóknar. Ekki er haldinn biðlisti. Umsóknir eru metnar samkvæmt reglum sveitarfélagsins.

Upplýsingar um félagslegt leiguhúsnæði og umsóknir.

Heimaþjónusta og stuðningsþjónusta

Heimaþjónusta og stuðningsþjónusta eru veitt á grundvelli mats á einstaklingsbundinni þörf. Markmiðið er að styðja fólk við daglegt líf og gera því kleift að búa heima.

Sótt er um stuðningsþjónustu í þjónustugátt Akureyrarbæjar með rafrænum skilríkjum. Velferðarsvið Akureyrarbæjar metur þjónustuþörf og Eyjafjarðarsveit annast framkvæmd þjónustunnar samkvæmt þjónustusamningi.

Skrifstofa sveitarfélagsins aðstoðar þau sem þurfa hjálp við umsókn.

Akstursþjónusta

Akstursþjónusta er veitt samkvæmt reglum Eyjafjarðarsveitar og mati á þörf umsækjanda.

Upplýsingar og umsókn um akstursþjónustu.

Þjónusta við fatlað fólk

Eyjafjarðarsveit er aðili að sameiginlegu þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk. Akureyrarbær er leiðandi sveitarfélag á þjónustusvæðinu.

Þjónustan byggist á mati á stuðningsþörf og getur meðal annars falist í ráðgjöf, stoðþjónustu, búsetuþjónustu, skammtímadvöl og notendastýrðri persónulegri aðstoð.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar annast þjónustu samkvæmt samstarfssamningnum. Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar veitir leiðbeiningar um hvert eigi að leita vegna einstakra þjónustuþátta.

Þjónusta við eldra fólk

Á upplýsingasíðum sveitarfélagsins um eldri borgara má finna upplýsingar um heimaþjónustu, félagsstarf, hreyfingu, akstursþjónustu og lýðheilsustyrk.

Yfirlit yfir þjónustu við eldri borgara.

Þegar þörf er á varanlegri búsetu á hjúkrunar- eða dvalarheimili þarf að sækja um færni- og heilsumat. Matið tekur mið af aðstæðum og þjónustuþörf viðkomandi.

Upplýsingar um færni- og heilsumat og umsóknarferli.

Börn og fjölskyldur

Börn og foreldrar geta fengið ráðgjöf og stuðning vegna uppeldis, fjölskylduaðstæðna og annarra áskorana. Þegar þörf er á samstarfi fleiri þjónustuaðila geta foreldrar og börn óskað eftir samþættingu þjónustu í þágu farsældar barns.

Upplýsingar um farsæld barna, tengiliði og málstjóra.

Barnavernd

Barnaverndarþjónustan á Norðurlandi eystra tekur við tilkynningum og veitir þjónustu vegna barna í Eyjafjarðarsveit.

Ef ástæða er til að ætla að barn búi við óviðunandi aðstæður, verði fyrir ofbeldi eða vanrækslu, eða stofni heilsu sinni og þroska í hættu, skal tilkynna það til barnaverndar.

Tilkynna til barnaverndarþjónustunnar á Norðurlandi eystra.

Ef málið þolir ekki bið skal hringja í 112.

Lög og reglur

Félagsþjónustan byggist meðal annars á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sérlögum um viðkomandi þjónustu og reglum sem um hana gilda.

Á upplýsingasíðum einstakra þjónustuþátta eru nánari upplýsingar um skilyrði, umsóknir og gjöld. Þar sem við á skal afgreiðslu umsóknar fylgja leiðbeining um rétt til endurskoðunar eða kæru.

Síðast uppfært 14. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?