Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning skal vera skrifleg og undirrituð af heimilismönnum, 18 ára og eldri, til staðfestingar á þeim upplýsingum sem þar koma fram. Með umsókn skulu fylgja öll nauðsynleg gögn. Hafi umbeðin gögn ekki borist 45 dögum frá umsóknardegi er umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning synjað. Þetta á þó ekki við ef töf á skilum gagna má rekja til annarra aðila en umsækjanda, samkvæmt 2. gr. reglna sveitarfélagsins.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 15-17 ára barna
Með umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 15-17 ára barna þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Hafi umbeðin gögn ekki borist 45 dögum frá umsóknardegi er umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning synjað.
Hér má nálgast reglur um sérstakan húsnæðisstuðning.