Jón Björn Hákonarson tók við embætti sveitarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar 2026. Hann er fæddur og uppalinn á Norðfirði en býr nú í Eyjafjarðarsveit.
Jón Björn sat í bæjarstjórn Fjarðabyggðar sem aðalmaður frá 2010-2026 og var forseti bæjarstjórnar þann tíma að undanskildum 2020-2023 er hann var bæjarstjóri. Þá sat hann í nefndum á vegum Fjarðabyggðar, og forvera þess, frá kjörtímabilinu 1994-1998 og veitti þeim formennsku. Einnig hefur hann setið í stjórnum og nefndum á samstarfsvettvangi sveitarfélaganna, bæði á Austurlandi sem landsvísu, á þessum tíma. Þá sat hann í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2018-2026 og þar af sem formaður frá 2025. Þá hefur Jón Björn setið í stjórnum fyrirtækja og stofnana í gegnum tíðina ásamt öðrum störfum s.s.á sviði almannavarna, lögreglu og víðar.
Jón Björn er kvæntur Hildi Völu Þorbergsdóttur og á hann þrjú börn.