Tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar er staðsett norðan sundlaugar og íþróttamiðstöðvar sveitarinnar. Svæðið er veðursælt og tjaldsvæðið á flötu þurrlendi og því er mögulegt að opna svæðið snemma á vorin. Á tjaldsvæðinu er lítið uppþvottahús með heitu og köldu vatni en snyrtingar og sturta eru í kjallara Íþróttamiðstöðvarinnar frá skólalokum Hrafnagilsskóla á vorin. Góð aðstaða er fyrir húsbíla svo sem raftenglar og skólplosun.
Tjaldverðir eru á vakt fram á kvöld og er hægt að ná í þá í síma 894 8121. Einnig er hægt að hringja í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar á opnunartíma hennar í síma 464 8140.
Netfang tjaldsvæðisins er camping@esveit.is.
Smellið HÉR
til að komast beint inn á bókunarsíðuna.
Gjaldskrá tjaldsvæðis 2026
Tjald/húsbíll 1.750 kr. á mann nóttin.
Rafmagn 1.100 kr. á sólarhring.
Frítt fyrir börn 17 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum.
Gistináttagjald 400 kr.- legst ofan á allar seldar gistinætur (hver nótt fyrir hvert stæði, óháð fjölda einstaklinga í gistingu).
Hægt er að bóka stæði fyrirfram á svæðum B, C, D og E á vef Reisa.is.
Við setjum inn upplýsingar á Facebook-síðu íþróttamiðstöðvarinnar ef tjaldsvæðið þegar tjaldsvæðið okkar er orðið fullt.
https://www.facebook.com/Sundlauginhrafnagili/

Tjaldsvæðinu er skipt upp í 5 svæði og eru nánari útskýringar hér:
Svæði A
• Þetta svæði er ekki hægt að bóka eða panta fyrir fram
• Hér er það “fyrstur kemur, fyrstur fær.” Engu að síður eru fjöldatakmarkanir á þessu svæði og eru gestir beðnir um að virða slík skilaboð frá tjaldvörðum sem sett verða við innkeyrslu á svæðið. Ekki er heimilt að vera með bíla inni á þessu svæði. Bílastæðum hefur verið fjölgað á svæðinu og því ættu allir bílar að komast þar fyrir.
• Gestir á svæði A ganga frá greiðslu í afgreiðslu sundlaugar eða verða rukkaðir af tjaldvörðum
• Á þessu svæði eru 24 rafmagnstenglar
• Skiptitími í hólfunum er kl 12:00 - ef aðstæður leyfa er hægt að fá leyfi hjá tjaldvörðum til að vera lengur.
Svæði B
• Þetta svæði er bókanlegt á Reisa.is
• Það er hólfað niður í 15 hólf (B1-B15, sjá nánar á korti)
• Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn
• Skiptitími í hólfunum er kl 12:00 - ef aðstæður leyfa er hægt að fá leyfi hjá tjaldvörðum til að vera lengur.
Svæði C
• Þetta svæði er bókanlegt á Reisa.is
• Það er hólfað niður í 14 hólf (C1-C14, sjá nánar á korti)
• Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn
• Skiptitími á svæði C er kl 12:00 - ef aðstæður leyfa er hægt að fá leyfi hjá tjaldvörðum til að vera lengur.
Svæði D
• Þetta svæði er bókanlegt á Reisa.is
• Það er hólfað niður í 13 hólf (D1-D13, sjá nánar á korti)
• Á þessu svæði er 1 rafmagnstengill fyrir hvert hýsi/einingu, kjósi gestir að nota rafmagn
• Skiptitími á svæði D er kl 12:00 - ef aðstæður leyfa er hægt að fá leyfi hjá tjaldvörðum til að vera lengur.
Svæði E
• Þetta svæði er bókanlegt á Reisa.is
• Það er hólfað niður í 17 hólf (E1-E17, sjá nánar á korti)
• Hvert hólf á merktan rafmagnstengil, kjósi gestir að nota rafmagn
• Skiptitími í hólfunum er kl 12:00 - ef aðstæður leyfa er hægt að fá leyfi hjá tjaldvörðum til að vera lengur.
Fastur opnunartími er 1. júní til 31. ágúst ár hvert en helgaropnun er í maí og september þegar vel viðrar.
Sparkvöllur, körfuboltavöllur, ærslabelgur og íþróttavöllur eru fast við tjaldsvæðið sem og nokkrar Frisbie-golf grindur. Leiktæki má finna á skólalóð Hrafnagilsskóla, en athygli er vakin á því að framkvæmdir standa yfir við íþróttamiðstöðina og eru gestir beðnir um að sýna fyllstu varúð og fara eftir öllum öryggismerkingum sem þar má finna.

Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
v/ Hrafnagilsskóla, 605 Akureyri
Sími: 464 8140 / 894 8121
Netfang ÍME: sundlaug@esveit.is
Netfang tjaldsvæðis: camping@esveit.is.