Hreyfing

Í Eyjafjarðarsveit er aldurshópnum 60+ boðið upp á fjölbreytt hreyfiúrræði. Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit er í samstarfi við Ungmennafélagið Samherja sem sjá um skráningu og utanumhald þeirra úrræða sem eru í boði. Þátttakendur skrá sig hjá ungmennafélaginu í Abler og ganga þar frá greiðslu æfingagjalda. Eldri borgarar eiga kost á árlegum lýðheilsustyrk frá sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar HÉR. Sveitarfélagið úthlutar tíma í íþróttamannvirkjum sínum fyrir þennan hóp.
 
Eyjafjarðarsveit tekur þátt í verkefninu Bjartur lífsstíll og er íþrótta- og tómstundafulltrúi ábyrgðarmaður verkefnisins fyrir hönd sveitarfélagsins.
 
Fastir tímar veturinn 2026 - 2027 eru þessir, en vetrardagskránni lýkur 1. júní ár hvert:
 
Sundleikfimi
Mánudagar kl. 13.00 - 14.00
Föstudagar kl. 13.00 - 14.00
Þjálfari er Ragnheiður Runólfsdóttir
 
Styrktartímar
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20
Þjálfari er Helga Sigfúsdóttir
 
Boccia
Miðvikudagar kl. 10.45 - 12.00
Föstudagar kl. 11.20 - 12.20
 
Ringo
Þriðjudagar kl. 11.25 - 12.30
Síðast uppfært 15. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?