Heilsueflandi Eyjafjarðarsveit

1754993824_08_heilsueflandi-s_logo_eyjafjardarsveit-crop1

Eyjafjarðarsveit er aðili að verkefni embættis Landlæknis um heilsueflandi samfélag sem snýst um að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, vellíðan og lífsgæðum allra íbúa – ungra sem aldinna – í okkar sveitarfélagi. Með heilsueflandi nálgun er heilsa samþætt í stefnumótun, þjónustu, skipulag og daglegu lífi í Eyjafjarðarsveit þannig að hreyfing, hollt mataræði, andleg vellíðan og félagsleg virkni verði auðveldari og sjálfsagðari kostur fyrir alla. En um þetta snúast markmið verkefnisins Heilsueflandi samfélag, það er að styðja við samfélög við að vinna markvisst að lýðheilsu og vellíðan íbúa sinna.

Eyjafjarðarsveit styður á fjölbreyttan hátt, beint og óbeint, við lýðheilsu íbúa, t.d. með rekstri sundlaugar- og íþróttahúss, gerð leikvalla, göngu- og hjólastíga, opinna svæða, reiðvega, kortlagningu gönguleiða, og rekstri bókasafns, félagsheimilis og félagsmiðstöðvar, auk styrkja til íþrótta- og tómstundafélaga. Einnig greiðir sveitarfélagið lýðheilsustyrk fyrir eldri borgara og íþrótta- og tómstundastyrk barna sem ætlað er að hvetja til þátttöku í hreyfiúrræðum sem og íþrótta- og tómstundatengdri starfsemi. Eyjafjarðarsveit hefur verið virkur þátttakandi í Íþróttaviku Evrópu og hefur verið með metnaðarfulla dagskrá í tengslum við þá daga.

Heilsueflandi samfélag er þó fyrst og fremst lifandi samstarf, þar sem íbúar, skólar, íþróttamiðstöð, frístunda- og félagsstarf og aðrir hagsmunaaðilar vinna saman að því að gera Eyjafjarðarsveit að stað þar sem heilsa skiptir máli fyrir alla.

Síðast uppfært 16. janúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?