Framkvæmdaleyfi

Framkvæmdaleyfi

Samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þarf framkvæmdaleyfi vegna meiri háttar framkvæmda sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem landmótunar og efnistöku. Framkvæmdir sem háðar eru byggingarleyfi þurfa þó ekki sérstakt framkvæmdaleyfi.

Um umsóknir, fylgigögn og afgreiðslu framkvæmdaleyfa fer samkvæmt reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, með síðari breytingum.

Sótt er um framkvæmdaleyfi rafrænt í þjónustugátt Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar (SBE). Umsókninni skulu fylgja upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd og nauðsynleg fylgigögn.

Sækja um framkvæmdaleyfi í þjónustugátt SBE

Ef vafi leikur á leyfisskyldu framkvæmdar eða hvaða gögn þurfi að fylgja umsókn er hægt að leita leiðbeininga hjá SBE á sbe@sbe.is eða í síma 463 0621.

Gjöld eru samkvæmt gildandi gjaldskrá sem nálgast má á heimasíðu SBE.

Síðast uppfært 14. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?