Auglýsingablaðið

1231. TBL 21. febrúar 2024

Auglýsingablað 1231. tbl. 16. árg. miðvikudaginn 21. febrúar 2024.

Frá Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Félagsborg laugardaginn 9. mars og hefst
kl. 11:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Á vegum félagsins verður boðið upp á súpu og brauð að loknum fundi. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Stjórnin.



Gaukshreiðrið hjá Freyvangsleikhúsinu

Frumsýning 16. febrúar kl. 20:00.
Sýningar næstu helgar komnar í sölu á tix.is og í síma 857-5598.
Freyvangsleikhúsið.



Ágætu sveitungar

Lionsklúbburinn Sif þakkar kærlega fyrir stuðninginn í gegnum árin þið eruð búin að vera frábær.

Nú ætlum við að bjóða ykkur að eyða með okkur kvöldstund miðvikudagskvöldið 28. febrúar kl. 20:00 í Félagsborg og hlusta á fyrirlestur um SJÁLFSRÆKT.

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur skemmtilega stund.
Lionsklúbburinn Sif.

Getum við bætt efni síðunnar?