Auglýsingablaðið

1237. TBL 02. apríl 2024

Sveitarstjórnarfundur
630. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 4. apríl og hefst hann kl. 8:00.
Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.


Aðalsafnaðarfundur Grundarsóknar
Fimmtudaginn 10. apríl kl. 20:00 í Sólgarði.
Venjulega aðalfundarstörf. Öll velkomin.
Sóknarnefndin.


Vortónleikar Karlakórs Eyjafjarðar verða haldnir föstudaginn 19. apríl í Laugarborg kl. 20:00 og laugardaginn 20. apríl í Bergi á Dalvík kl. 16:00. Flutt verða lög við texta Kristjáns frá Djúpalæk í bland við annað efni.
Kórstjóri: Guðlaugur Viktorsson.
Aðgangur 4000 kr.

Getum við bætt efni síðunnar?