Takk fyrir komuna á sumardaginn fyrsta í tilefni Opinna dyra og eyfirska safnadagsins! Þvílík og önnur eins mæting! Þið sem ekki komust þurfið ekki að örvænta því nú förum við að skríða úr vetrarhýðinu!
Það verður opið á þessum laugardögum í maí frá kl. 14:00-17:00:
3. maí, 10. maí, 17. maí og 31. maí og síðan næstum daglega í júní, júlí og ágúst frá kl. 13:00-17:00!
Einnig viljum við ráða áhugasöm ungmenni í sumarstörf í afgreiðslu og þrif. Jákvætt viðmót, vinnusemi og snyrti mennska skilyrði. Aldurstakmark 14 ára á árinu. Greitt skv. kjarasamningi Einingar-Iðju. Umsóknir sendist til info@haelid.is
