Píslarganga á föstudaginn langa 7. apríl

Hin árlega píslarganga á vegum Hjálparsveitarinnar Dalbjargar verður á föstudaginn langa 7. apríl.

Lagt verður af stað gangandi frá Dalborg kl. 10:00, gengið á bökkunum inn að Munkaþverárkirkju (4,5 km önnur leið). Fyrir þau sem vilja ganga hálfa leið verður farið keyrandi frá Dalborg kl. 11:00 inn að kirkjunni. Þar verður séra Jóhanna Gísladóttir með helgistund kl. 11:30-12:00. Svo verður gengið til baka í Dalborg, þar sem verður vöfflukaffi og kassaklifur fyrir börn kl. 13:00-14:00.

Frjáls framlög í styrktarsjóð Dalbjargar.