Sköpunarsmiðja Vökulandi 21.-23.apríl

UM SMIÐJUNA
Smiðjan er ætluð þeim sem vilja takast á við áskoranir lífsins með skapandi hætti. Hún byggir á hugmyndum um mikilvægi skapandi flæðis í leitinni að lífshamingju og um lífið sem þroskaferðalag.
Smiðjan er í formi félagsörvunar og skapandi tjáskipta, umræðna og speglunar, sagnamennsku, ritlistar, myndlistar, leiklistar, tónlistar, ritúala, ígrundunar og leiddrar hugleiðslu.
Markmiðið er ekki að skapa áþreifanleg listaverk heldur að skoða og virkja eigin sköpunarkraft.
LEIÐBEINANDI
Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistar- og myndlistarkennari, styðst við Hetjuferðarþjálfun Paul Rebillot og bók Juliu Cameron The Artist´s Way auk eigin aðferða sem hún hefur þróað á fjörutíu ára kennsluferli.
https://stilvopnid.is/um-bjorgu/
TILHÖGUN
Fös. 21. apríl kl. 18:00-22:00: ÖRYGGIÐ
Fjölbreyttar upphitunaræfingar gerðar til að þátttakendur kynnist sjálfum sér og hinum í hópnum, yfirstígi ótta og finni til öryggis og frelsis til að skapa. Æfingarnar eru ýmist hóp- eða einstaklingaæfingar.
Lau. 22. apríl kl. 10:00 -14:00: ÞROSKAVERKEFNIN OG ÆVINTÝRIÐ
Ferðast um hið óþekkta land ævintýrisins með aðferðum lista, innri ferðalaga og skapandi tjáskipta.
Sun. 23. apríl kl. 10:00 -14:OO: GJÖFIN OG GLEÐIN
Eftir uppgötvanir í landi ævintýrisins snúa þátttakendur smám saman aftur til hversdagsins, umbreytt með þroskagjöf í pokahorninu. Umræður og ritúöl sem festa umbreytinguna í sessi.
UMSÖGN
Ragna Þóra Karlsdóttir (Sköpunarsmiðja, 2021):
„Sköpunarsmiðjan var mér styrking, gleði, gjöf og gæfa. Ég þekki sjálfa mig betur og er sterkari og öruggari að halda áfram með gleðina að leiðarljósi um komandi daga og ár. Ég vann mig í gegnum áhugaverð og gefandi verkefni með frábæru fólki. Ég hlakka svo til að hafa þessu reynslu með mér út í lífið sem er eitt stórt ævintýri. Kærar þakkir, Björg, og þið dásamlegu samnemendur.”
Umsagnir um námskeið Stílvopnsins: https://stilvopnid.is/umsagnir/
VERÐ OG SKRÁNING
Verð: 49.900 kr.
Skráningarupplysingar væntanlegar á stilvopnid.is

https://www.facebook.com/events/867977901126984/