Aðalfundur Eyþings

13. fundur 30. nóvember 2022 kl. 17:00 - 18:50 Bústólpi ehf. á Akureyri
Nefndarmenn
  • Emilía Baldursdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Hólmgeir Þorsteinsson
  • Jóhann Reynir Eysteinsson
  • Ólafur Kjartansson
  • Valdimar Gunnarsson
Fundargerð ritaði: Hólmgeir Karlsson Ritari

Fyrir fundinum lá dagskrá í 7 liðum:
1. Skipa formann nefndarinnar og ritara 2. Friðlýsing hluta Hverfisverndarsvæðis 3. Beiðni um álit varðandi ósk um framkvæmdaleyfi fyrir landfyllingu í Hvammi 4. Vatnsflæði í austustu kvísl Eyjafjarðarár 5. Efnisgeymsla á Hverfisverndarsvæðinu 6. Staða annarra óafgreiddra mála 7. Önnur mál

Afgreiðsla mála:

1. Skipa formann nefndarinnar og ritara Nefndin skipti með sér verkum. Emilía Baldursdóttir var kosin formaður og Hólmgeir Karlsson ritari.

2. Friðlýsing hluta Hverfisverndarsvæðis Rætt var um ábendingu sem fram kom í skýrslunni „Fuglalíf í óshólmum Eyjafjarðarár 2020“, sem unnin var fyrir Eyjafjarðarsveit og Akyreyri, en þar kemur fram að skýrsluhöfundar mæla með því að hafin verði undirbúningur að friðlýsingu á hluta hverfisverndarsvæðisins.

3. Beiðni um álit varðandi ósk um framkvæmdaleyfi fyrir landfyllingu í Hvammi Gögn voru rýnd og rædd. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Fundi var slitið kl. 18:50 og afgreiðslu á liðum 3 til 7 vísað til næsta fundar.

Getum við bætt efni síðunnar?