Félagsmálanefnd

98. fundur 11. desember 2006 kl. 00:19 - 00:19 Eldri-fundur

98. fundur félagsmálanefndar haldinn í fundarsal sveitarstjórnar að Syðra- Laugalandi fimmtudaginn 10.júní 2004, kl. 16.15

 

Mættir: Aðalheiður Harðardóttir Eygló Daníelsdóttir, Hrefna Ingólfsdóttir, Ingjaldur Arnþórsson og ásta Pétursdóttir.

 


Dagskrá:
1. Umsókn um leyfi til að starfa sem dagmóðir í Eyjafjarðarsveit
2. Stefnuskjal Vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar
3. Umsókn um leiguhúsnæði

 

Afgreiðsla:

1. Umsókn Guðrúnar Maríu Ingvarsdóttur um leyfi til að starfa sem dagmóðir uppfyllti öll skilyrði og var samþykkt samhljóða.

 

2. Farið var yfir Stefnuskjal Vinnuskólans

Lögð var til breyting á 4. gr. þess. Hún hljóði svo: "á starfstíma Vinnuskólans fá nemendur þrjá fræðsludaga ef því verður við komið. Um gæti verið að ræða fræðslu um umhverfismál og endurvinnslu, fræðslu um atvinnumál og réttindi og skyldur á vinnumarkaði og kynning á hættunni af vímuefnaneyslu. Einnig verður boðið upp á sameiginlega afþreyingu utan vinnutíma a.m.k. tvisvar á starfstíma skólans."
Einnig var gerð breyting á 3.gr. Hún hljóði svo: "Vinnutími er að hámarki eins og kveðið er á um í reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga. Umsjónarmaður og verkstjóri taka í sameiningu ákvörðun um vinnutíma unglinganna. Settar skulu sérstakar reglun um hegðun og framkomu, mætingu, tilkynningu forfalla/veikinda og umsóknir um leyfi, sem taki mið af því sem gengur og gerist á almennum vinnumarkaði, eftir því sem við getur átt. Verði misbrestur á veitir verkstjóri nemandanum aðvörun og lætur forráðamenn tafarlaust vita".


3. Sveitarstjóri lagði fram umsókn sem hafði borist um leiguhúsnæði á vegum sveitarinnar. þar sem ekkert húsnæði er laust er viðkomandi settur á biðlista.

 

Fundi slitið kl. 17:30

Getum við bætt efni síðunnar?